Tekist á um aðstoðarmennina 20. desember 2008 06:00 Ármann Kr. Ólafsson
Í sparnaðar- og niðurskurðarvinnu Alþingis síðustu dægrin hefur verið lagt til að aðstoðarmenn þingmanna landsbyggðarkjördæmanna verði slegnir af. Áætlað er að kostnaður við kerfið nemi um 60 milljónum á ári. Þingmenn úr röðum stjórnarliða hafa lagt til að fyrirkomulaginu verði hætt, meðal annars Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Í ræðu við aðra umræðu fjárlaga kallaði Ármann það lúxus. Ólöf Nordal Sjálfstæðisflokki og Árni Páll Árnason hafa líka talað í sömu átt. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, tekið tillögunni þungt og raunar lagst gegn henni. Þingmenn landsbyggðarkjördæmanna fengu að ráða sér aðstoðarmenn í þriðjungsstarfi á fjórðungi af launum þingmanna fyrr á árinu. Rót þeirrar ráðstöfunar er að finna í umræðum um síðustu breytingu kjördæmaskipunarinnar en við hana stækkuðu landsbyggðarkjördæmin til muna. Er aðstoðarmönnunum ætlað að viðhalda tengslum þingmanna kjördæmanna við kjósendur og styrkja um leið störf þeirra í þinginu. Þrír þingmenn landsbyggðarkjördæmanna hafa ekki ráðið sér aðstoðarmenn. Það eru Árni Johnsen Sjálfstæðisflokki, Eygló Harðardóttir Framsóknarflokki og Kristinn H. Gunnarsson, Frjálslynda flokknum. -bþs
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira