Lífið

„Nú þurfum við heiðarlegt þjóðfélag," segir Raggi Bjarna

Ragnar Bjarnason.
Ragnar Bjarnason.

„Þetta er svona þetta gamla. Þetta er eina platan sem er svona með þessari músík. Þetta eru lög sem voru öll mjög vinsæl á sínum tíma og þessi tónlist er bara eitthvað sem fólk nýtur þess að hlusta á," segir Ragnar Bjarnason sem sendir frá sér nýja plötu fyrir þessi jól sem nefnist „Lögin sem ekki mega gleymast".

„Platan er ekki endilega stíluð á eldra fólk heldur frekar fyrir alla sem vilja gleðjast, dansa og syngja með og gleyma þessu augnabliki og hafa það huggulegt."

Á nýju plötunni hefur Raggi valið 15 lög sem öll eiga sér sess í hans lífi, bæði í einkalífinu og tónlistarlífinu. Þau eiga það sameiginlegt að hann hefur sungið þau oft á sínum langa ferli en aldrei áður gefið þau út.

Hefur þú upplifað kreppu?

„Já ég ólst upp við við fátækt en við höfðum þó allltaf nóg að borða. Þegar ég var strákur var aðalvandamálið hjá mér að mamma gamla myndi ekki sauma slitnar buxurnar með gráu efni eða gardínunum," svarar Ragnar.

„Þá voru ekki til appelsínur og epli. Ég hef séð þetta svo sum en svo kom stríðið og þá breyttist allt saman hér á landi."

„Ég held að heiðarleikinn sé það sem núna gildir. Menn verða að endurskoða sjálfan sig. Ég, þú og allir. Nú þurfum við að fá heiðarlegt þjóðfélag sem er opið," segir Ragnar að lokum.

Platan hans Ragnars á tonlist.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.