Önnur þáttaröð vestanhafs 1. desember 2008 02:00 Þættirnir Little Britain hafa slegið rækilega í gegn á undanförnum árum.
Önnur þáttaröð af Little Britain USA verður gerð fyrir Bandaríkjamarkað þrátt fyrir orðróm um að áhorfendur þar í landi hafi átt erfitt með að átta sig á húmornum og hafi fundist hann of dónalegur. Matt Lucas, annar af höfundum Little Britain, vill ekki meina að þættirnir hafi verið umdeildir. Segir hann bandarísku sjónvarpsstöðina HBO, sem framleiddi þá, hafa verið mjög ánægða með útkomuna. Félagi hans David Walliams bætti við: „Þáttaröðin gekk mjög vel á HBO. Hún fékk mikið áhorf, góða dóma og allir voru virkilega ánægðir. Við erum virkilega glaðir og stoltir.“ Walliams játar að þættirnir reyni á þolrif áhorfenda en það sé þó ekki ætlunin. „Við reynum bara að skemmta fólki, ekki að misbjóða því. Mér finnst að ef fólk er ekki hrifið af þáttunum eigi það ekki að horfa á þá.“ Hann segir þá félaga ekkert hafa dregið undan í þáttunum þrátt fyrir að Bandaríkjamenn séu margir hverjir viðkvæmir. „Við höfðum allt þetta ógeðslega með. Það voru nokkur ruddaleg atriði en þannig er Little Britain bara.“ Matt Lucas er um þessar mundir að leika í myndinni Lísu í Undralandi í Hollywood ásamt Johnny Depp og Tim Burton. „Það er mjög gaman að heimsækja Los Angeles. Sólin skín og maður hittir stjörnurnar og getur fengið sér hamborgara í morgun-, hádegis- og kvöldmat. Og já, ég hitti líka Tom Cruise, Johnny Depp og Will Ferrell.“
Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Sjá meira