Palin sakar Obama um að vingast við hryðjuverkamenn 4. október 2008 22:51
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin í aðdraganda bandarísku forsetakosninganna því Sarah Palin, varaforsetaefni repúbilkana, sakaði í dag Barack Obama, forsetaefni demókrata, um að vingast við hryðjuverkamenn sem beindu spjótum sínum að eigin landi. Ástæðan er sú að bandaríska stórblaðið New York Times greindi frá því að Obama hefði nokkrum sinnum hitt Bill Ayers, rótttækling sem fór fyrir samtökunum Weather Underground, sem barðist gegn stríðsrekstri á áttunda áratugnum meðal annars með sprengjutilræðum við Pentagon og bandaríska þinghúsið. Obama og Ayers munu búa í sama hverfi en eftir því sem New York Times segir eru þeir ekki nánir og þá hefur Obama aldrei lýst yfir stuðningi við aðgerðir Ayers. Í sama streng taka fleiri stórblöð í Bandaríkjunum. Engu að síður virðast repúblikanar ætla að láta sverfa til stáls nú þegar mánuður er til kosninga. Í yfirlýsingu í dag sakaði Palin Obama um að vingast við hryðjuverkamenn sem beindu spjótum sínum að eigin landi. Talsmaður Obama sagði yfirlýsinguna hins vegar meiðandi en að hún kæmi ekki á óvart í ljósi yfirlýsinga úr herbúðum repúblikana um að þeir myndu beita árásum á Obama. Það væri gert til þess að draga athyglina frá efnahagsvandræðunum sem rekja mætti til stjórnunar repúblikana. Skoðanakannanir sýna að Obama hefur töluvert forskot á McCain í skoðanakönnunum.
Mest lesið Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Framsókn næði ekki inn á þing Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Fleiri fréttir Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Rýma svæði í Austur-Finnlandi vegna úkraínsks sprengjudróna Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Blaðamanni rænt í Írak Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Telur að múslimar geti ekki verið Svíar „Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Banna íbúðakaup til öskugeymslu Vill að tæp milljón Sýrlendinga yfirgefi Þýskaland Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Ofsahræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flugtak Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Telja réttarmorð framið á hjúkrunarfræðingi sem var dæmdur fyrir barnamorð Uppnám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Úkraínskir drónar brotlentu í Finnlandi Tölur um vaxandi trúrækni ungs fólks byggðar á sandi Sjá meira