Erlent

Leiðtogar í Evrópu funda í dag

Nicholas Sarkozy Frakklandsforseti fundar með leiðtogum Bretlands, Þýskalands og Ítalíu í Paris í dag.

Gert er ráð fyrir að Sarkozy leggi áherslu á að bæta samráð stjórnvalda ríkja sem eiga aðild að ESB fyrir næsta fund G8 ríkjanna í Bandaríkjunum. Frakkar vilja samstöðu um nauðsynlegar íhlutanir til að vernda evrópska banka, en þeir neita því að þeir séu að stefna á björgunarpakka í liking við þann sem stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa samþykkt.

Francois Fillon, forsætisráðherra Frakka, lýsir ástandi í efnahagsmálum þannig að alheimurinn sé við brún hyldýpisins. Hann segir að Frakkar stefni á að gerðir til þess að losa um lausafé og samþætta efnahagsaðgerðir.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×