Seðlabankinn þurfi að afskrifa vel á annað hundrað milljarða 27. október 2008 14:11 Ásmundur Stefánsson.
Búist er við að Seðlabankinn þurfi að afskrifa vel á annað hundrað milljarða króna vegna taps á endurhverfum viðskiptum við fjármálastofnanir hér á landi. Þetta kom fram í máli Ásmundar Stefánssonar á opnum fundi efnahags- og skattanefndar. Vísaði Ásmundur til talnanna sem vinnutalna. Ásmundur var á dögunum ráðinn til forsætisráðuneytisins til þess að samræma vinnu ýmissa hópa í kreppunni. Í máli hans fyrir nefndinni kom fram að miklu máli hefði skipt að tryggja að bankarnir störfuðu áfram en 85 prósent af bankakerfinu hefði hrunið með falli stóru viðskiptabankanna þriggja. Hann sagði bæði innistæður og virk viðskipti hafa verið færð úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju og nú væru að störfum aðilar við að leggja mat á viðskiptin við bankana. Eitt fyrirtæki sæi um hvern banka og að þeirri vinnu lokinni yrði fenginn annar aðili til þess að gæta þess að unnið verði með samræmdum hætti í öllum bönkum. Þá sagði Ásmundur, sem fór fyrir viðræðum við Breta um Icesave-reikninga Landsbankans, að ákveðið hefði verið að láta viðræður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa forgang á viðræður við Breta og því hefði þeim viðræðum verið frestað. Þá sagði hann Alþjóðagjaldeyrissjóðinn engar kröfur hafa sett fram um að Íslendingar semdu við Breta. IMF telur íslenskt stjórnkerfi geta tekist á við vandann Um skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir láni sagði Ásmundur að sjóðurinn mæti það skýrt þannig að íslenskt stjórnkerfi gæti tekist á við vandann. Því færi sjóðurinn fram á að við sýndum ábyrgð og aðhaldssemi engar kröfur væru um breytingar á Íbúðalánasjóði eða um ákveðinn niðurskurð eða skattlagningu. Hins vegar væri ljóst að mæta þyrfti þeirri þröngu stöðu sem við værum í og taka yrði á málum af festu. Þá sagði hann alveg ljóst að með aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þá yrðu þrengingarnar minni og vonandi skammvinnari en ef við hefðum ekki leitað til hans. Þá sagði hann enga ákvörðun liggja fyrir um stýrivexti á næstunni enda væri slík ákvörðun á hendi Seðlabankans. Hann sagði þó að við yrðum að tryggja stöðugleika í gengismálum til að ná stöðugleika í verðlagsmálum og það kynni að vera að grípa þyrfti til stýrivaxtahækkunar til þess að hafa áhrif á flæði fjármagns frá landinu. Ekki fýsilegt að festa gengið Þá þyrftu menn að hugsa til þess að við yrðum að vinna að áætlun sem seðlabankar nágrannaríkja vildu vinna með. Rætt hefði verið við þá um aðkomu og ljóst væri að hjá flestum þeirra væri aðkoma IMF forsenda fyrir aðkomu þeirra. Spurt var um það á fundi efnahags- og skattanefndarinnar hvort möguleiki væri á að festa gengið. Ásmundur svaraði því til að sú staða hefði verið skoðuð. Ef það ætti að gera slíkt þyrftum við að hafa gífurlegan gjaldeyrissjóð til þess að bregðast við því ef menn flyttu fjármagn úr landi. Við værum ekki í annarri stöðu en þeirra að láta markaðinn ákveða gengið. Við yrðum þó að vera með traustan gjaldeyrissjóð og beita aðgerðum í peningamálum þannig að menn væru tilbúnir að verja gengið. Þá sagði Friðrik Már Baldursson, prófessor við HR, sem einnig sat fyrir svörum, að aðgerðir til að festa gengi hefðu hvergi borið góðan árangur.
Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Íranir skjóta á Ísraela Erlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Fleiri fréttir 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjá meira