Erlent

Tuttugu taldir látnir eftir rútubruna í Þýskalandi

MYND/AFP

Óttast er að 20 manns hafi látist í rútuslysi nærri Hannover fyrr í kvöld. Tólf til viðbótar eru slasaðir.

Rútunni var ekið eftir hraðbraut nærri borginni og virðist sem eldur hafi komið upp í henni af einhverjum sökum. Eftir því sem fréttastofa Reuters greinir frá tókst um tíu farþegum að komast út úr rútunni en öðrum ekki. Lögregla rannsakar nú upptök eldsins en talið er að eldri borgarar hafi verið í rútunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×