Erlent

Ákærur lesnar yfir Karadzic

Radovan Karadzic fyrir stríðsglæpadómstólnum í dag.
Radovan Karadzic fyrir stríðsglæpadómstólnum í dag.

Ákærur voru lesnar yfir Radovan Karadzic fyrrum leiðtoga Bosníu-Serba í stríðsglæpadómstólnum í Haag í dag. Karadzic sat þögull á meðan ákærurnar voru lesnar upp en hann er kærður fyrir þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi. Karadzic vildi ekki lýsa yfir sekt eða sakleysi, sagðist ekki vera tilbúin til þess þar sem hann væri enn að skoða ákæruna.

Þegar hann var spurður að því hvort hann ætlaði að verja sjálfan sig svaraði hann því játandi en sagðist hafa ósýnilega ráðgjafa.

Alls er um 11 ákærur að ræða, þar á meðal er hann ákærður fyrir fjöldamorðið í julí 1995 á 8000 karlmönnum og drengjum í Srebrenica. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa látið drepa þúsundir óbreyttra borgara í hinu fjögurra ára umsátri um Sarajevo.

Karadzic hefur 30 daga til þess að lýsa yfir sekt eða sakleysi. Ef hann gerir það ekki þá er gert ráð fyrir að hann lýsi sig yfir saklausan.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×