Clint Eastwood lýkur leikferlinum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 24. nóvember 2008 07:57 Eastwood sem Dirty-Harry, kornungur.
Leikarinn Clint Eastwood ætlar setjast í helgan stein eftir að hann leikur í myndinni Gran Torino. Gamla brýnið úr Dirty Harry-myndunum og hinum gamalkunnu spaghettívestrum Sergios Leone hefur lýst því yfir að eftir rúmlega fimm áratugi á hvíta tjaldinu sé nóg komið. Margir hafa farið á eftirlaun fyrr en Eastwood því hann á aðeins tvö ár í áttrætt. Það er þó engan veginn ætlun leikarans að leggjast með tærnar upp í loft og taka sér fullkomna hvíld frá amstri dagsins því hann mun halda leikstjórnarferli sínum áfram. Síðasta myndin sem Eastwood leikur í, Gran Torino, fjallar um gamla skapstirða kempu úr Kóreustríðinu sem er annálaður kynþáttahatari og samskipti hans við nágranna sinn sem er ungur Asíubúi. Áður en leikferill Eastwood hófst árið 1959 í sjónvarpsþáttunum Rawhide dró hann fram lífið sem starfsmaður á bensínstöð, píanóleikari á bar og skógarhöggsmaður. Heimsfrægðin kviknaði svo þegar hann steig fram á sjónarsviðið með vindilstubb í munni, hörkulegt augnaráð og ódauðlega frasa í kvikmyndinni Hnefafylli af dollurum árið 1964. Þeir sem þekkja Eastwood persónulega halda því þó fram að bjóðist honum álitlegt hlutverk í framtíðinni sé óvíst að hann geti hafnað því enda hefur þeim gamla víst aldrei leiðst fyrir framan myndavélina.
Mest lesið Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Tónlist Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Tíska og hönnun Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Lífið Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Lífið Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Lífið Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Uppskriftir Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Lífið Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Lífið Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Lífið Fleiri fréttir Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Íslenskir áhrifavaldar fögnuðu sumrinu að sænskum sið „Það má ekki gleyma því af hverju við vorum að þessu“ Allt frá húðflúri yfir í dót úr skúrnum hans Steinda Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Sjá meira