Slæmar horfur í N-Kóreu 30. júlí 2008 21:45 Kim Jong-il er leiðtogi N-Kóreu. MYND/AP
Hungurvofan ógnar nú lífi og velferð milljóna manna í Norður-Kóreu vegna mikilla flóða og uppskerubrests. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að ástandið þar sé nú verra en nokkru sinni síðan hungursneyðin mikla felldi hundruð þúsunda fyrir um áratug. Talsmenn matvælahjálparinnar segjast telja að fimm til sex miljónir manna í Norður-Kóreu þurfi matargjafir næstu 3-4 mánuði, eða fram að næstu uppskeru. Mikil flóð í landinu á síðasta ári hafa valdið stórfelldum uppskerubresti sem gæti orðið að vannæringu milljóna manna. Norður-Kórea hefur ekki getað brauðfætt sig í rúman áratug, eða allt síðan miklar hamfarir gengu yfir landið á miðjum síðasta áratug. En hamfarirnar voru ekki eina ástæðan. Kínversk stjórnvöld ákváðu á þessum árum að taka fyrir endalaus og óafturkræf lán til nágrannaríkisins og jafnframt var vöruskiptafyrirkomulag milli Norður-Kóreu og kommúnistaríkjanna í Evrópu farið fyrir bí með hruni kommúnismans. Aðeins er hægt að rækta á um 13% land í Norður-Kóreu, enda landið fjöllótt og berangurslegt, einkum í norðurhlutanum. Stjórnvöld í Pyongyang hafa nú heimilað matvælahjálpinni að hefja dreifingu matvæla til fólks í átta af tíu héruðum landsins, eða til rúmlega 6 milljóna manna. Til þessa hafa Sameinuðu þjóðirnar fætt liðlega milljón manns. Matvæladreifing í landinu er öll á vegum ríkisins. Undanfarna mánuði hafa matarskammtar minnkað og verðlag hækkað verulega. Verð á hrísgrjónum innanlands hefur þrefaldast og verð á korni fjórfaldast. Laun hafa hinsvegar staðið í stað. Þrjár af hverjum fjórum fjölskyldum hafa ekki nóg að borða.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira