Obama boðar aðgerðir í atvinnu- og húsnæðismálum 13. október 2008 21:05
Skattaívilnanir fyrir fyrirtæki sem skapa störf og aðstoð fyrir þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum vegna húsnæðismála var meðal þess sem Barack Obamba, forsetaframbjóðandi demókrata, kynnti sem björgunaráætlun sína fyrir millistéttina í Bandaríkjunum. Obama hélt ræðu í Ohio nú undir kvöld þar sem hann kynnti áherslur sínar í efnahagsmálum en líkt og aðrar þjóðir glíma Bandaríkjamenn við afleiðingar lausafjárkreppunnar sem skekur heiminn. Hafa 750 þúsund manns misst vinnuna í landinu það sem af er ári. Aðgerðaáætlun Obama er í aðalatriðum í fjórum liðum. Hún gerir ráð fyrir lengri fresti gagnvart tilteknum bönkum fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með húsnæðislán og þrjú þúsund dollara skattaívilnun til fyrirtækja fyrir hvert starf sem þau skapa. Þá er gert ráð fyrir skattaafslætti fyrir þá sem komnir eru á eftirlaun og enn fremur vill Obama búa til alríkissjóð til þess að aðstoða ríki og borgir í þeim erfiðleikum sem fram undan eru. ,,Þetta er áætlun sem hefst á einu orði sem allir hugsa um, og það er stafað S-T-Ö-R-F," sagði Obama þegar hann kynnti áætlunina. Obama hefur sótt í sig veðrið í því gjörningaveðri sem gengið hefur yfir fjármálaheiminn og samkvæmt nýrri könnun ABC-fréttastofunnar og bandaríska stórblaðsins Washington Post hefur hann tíu prósenta forskot á keppinaut sinn John McCain, 53 prósent gegn 43. Þá nýtur Obama stuðnings nærri tveggja þriðju af þeim sem telja efnahagsmálin mikilvægasta verkefnið fram undan. John McCain neitar hins vegar að gefa eftir og segir fjölmiðla hafa afskrifað hann án þess að kosningar hafi farið fram. Í ræðu í Virginíu í dag lagði hann ekki fram neinar tillögur í efnahagsmálum en von er á áætlun úr röðum Repúblikana síðar í þessari viku.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira