Erlent

Írar æfir út í Sarkozy Frakklandsforseta

Írskir stjórnmálamenn eru æfareiðir eftir að Nicolas Sarkozy forseti Frakklands lagði til að írska þjóðin ætti að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon sáttmálann.

Eins og kunnugt er höfnuðu Írar sáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslu nýlega. Sarkozy vill að smávægilegar breytingar verði gerðar á sáttmálanum áður en Írum verður boðið upp á að greiða atkvæði á ný.

Talsmaður Sinn Fein á Írlandi segir að ummæli Sarkozy séu verulega móðgandi. Og talsmaður Verkamannaflokksins segir að þarna hafi Sarkozy stigið í kúamykju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×