Erlent

Setti brjóstamjólk eiginkonunnar til sölu á netinu

Kínverskur maður hefur sett brjóstamjólk eiginkonu sinnar til sölu á netinu af því að hann vill ekki að mjólkin fari til spillis.

Kona hans eignaðist dóttur nýlega og hefur matarlyst hennar verið mjög góð síðan. Eiginmaðurinn Li Jun segir að kona hans framleiði nú 200 millilítra af mjólk á hverjum klukkutíma sem sé alltof mikið fyrir dóttur þeirra að torga.

Hún framleiði næga mjólk handa öðru barni til viðbótar og því sé mjólkin til sölu á netinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×