Hvetja til stillingar í Suður-Ossetíu 8. ágúst 2008 15:28 Ekki liggur fyrir hversu margir hafa fallið í átökunum í Suður-Ossetíu. MYND/AP
Evrópusambandið, Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið hvöttu í dag deilendur í Georgíu og Suður-Ossetíu til þess að leggja strax niður vopn og hefja þess í stað viðræður. Eins og fram hefur komið í dag hafa hörð átök verið á milli georískra hermanna og uppreisnarmanna úr röðum Suður-Osseta sem berjast fyrir sjálfstæði héraðsins. Rússar hafa skorist í leikinn og sendu hersveitir inn í höfuðborg Suður-Ossetíu, Tshkvinvali, eftir að Medvedev Rússlandsforseti sagðist myndu verja hét því að verja samlanda sína í héraðinu. Um 90 prósent íbúa í Suður-Ossetíu eru með rússneskt ríkisfang. Fregnir berast nú af því að rússneskir hermenn hafi þegar náð hluta af Tshkinvali og að hermenn Georgíu hafi hörfað. Reyna að miðla málum Í tilkynningu frá Atlantshafsbandalaginu sagði að framkvæmdastjóri þess fylgdist náið með framvindu mála og hvetti alla aðila til að leggja niður vopn. Þá sagði talsmaður Javiers Solana, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, að ráðamenn þar hefðu miklar áhyggjur af ástandinu og sagði að binda þyrfti enda á átökin. Greindi hann enn fremur frá því að Solana myndi ræða við bæði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Eka Tkeshelashvili, utanríkisráðherra Georgíu. Talsmaður Hvíta hússins greindi frá því að Bush Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefðu rætt ástandið en þeir voru báðir viðstadddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking í dag. Deilan er nokkuð snúin því Georgíumenn hafa í auknum mæli leitað samstarfs við vestur og meðal annars sóst eftir aðild að Atlantshafsbandlaginu. Það líkar Rússum illa en þeir hafa í auknum mæli ýjað að stuðningi við sjálfstæðiskröfu Suður-Ossetíu.
Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Afar mjótt á munum hjá forsetaframbjóðendum í Póllandi Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi Leita „Skrattans í Ozarkfjöllum“ í hellum og skógum Fleiri ákærur væntanlegar í Liverpool Vísuðu til rannsókna sem voru ekki til í „heimsklassa“ skýrslu Enn hætta á flóðum þar sem heilt þorp hvarf í aurskriðu Sagði Diddy hafa nauðgað sér Russell Brand lýsir yfir sakleysi sínu Vestræn ríki niðurgreiða stríðsrekstur Rússa í Úkraínu Kærir Costner fyrir „ofbeldisfulla óundirbúna“ nauðgunarsenu Hamas hafna líklegast vopnahléstillögu Trump Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Ákærður fyrir að keyra á hóp fólks í Liverpool Störfum Musk lokið hjá DOGE Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu Heilt þorp varð undir aurskriðu í Sviss Boða nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Segir Ísraelsher hafa myrt leiðtoga Hamas Tuttugu ára fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gegn 299 börnum Merz lofaði Selenskíj aðstoð við langdrægar skotflaugar Vísaði frá máli gegn orkurisa vegna bráðnunar jökla Á góðri leið með loftslagsmarkmið standi ESB-ríki við sitt Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tugmilljónir dala út úr bönkum Stöðva vegabréfsáritanir námsmanna og rannsaka umsækjendur nánar Geimfar SpaceX splundraðist eftir 45 mínútna flug Springur Starship í þriðja sinn í röð? „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Sjá meira