Erlent

Harður jarðskjálfti skekur Japan

Frá borginni Morioka.
Frá borginni Morioka.
Jarðskjálfti upp á 6,8 á Richterkvarða skók norðurhluta Japans fyrr í dag. Skjálftinn varð á 107 kílómetra dýpi 64 kílómetra austur af borginni Morioka á stærstu eyjunni Honsu. Kjarnakljúfum í stóru kjarnorkuveri á svæðinu var lokað um tíma eftir skjálftann, en þeir eru komnir í fullan gang aftur. Ekki er vitað um slys á fólki, og segja yfirvöld í Japan enga hættu á því að skjálftinn geti valdið fljóðbylgju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×