Fóstbræður teknir út af Youtube 16. desember 2008 07:00 Vinsælir. Fóstbræðra-sketstar voru vinsælir meðal íslenskra notenda Youtube en þeir eru nú farnir.
Aðdáendur Fóstbræðra uppgötvuðu sér til mikillar skelfingar að búið var að taka út allt efni sjónvarpsþáttanna af hinni vinsælu vefsíðu Youtube. Fyrir ofan myndböndin stendur skýrum stöfum: „This video is no longer available due to a copyright claim by SMAIS," eða „þetta myndband er ekki lengur til vegna kröfu af hálfu Smáís". Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að þetta hefði verið gert í gærmorgun. „Við höfum yfirleitt látið svona sketsa í friði og litið á það sem kynningarefni en þarna var þetta orðið einum of mikið af hinu góða því fólk gat nálgast heilu og hálfu þættina í gegnum vefsvæðið," segir Snæbjörn en um var að ræða í kringum 140 sketsa úr þessum vinsælu grínþáttum sem tugþúsundir höfðu nálgast á undanförnum árum. Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, var mjög afdráttarlaus í svörum. „Við látum fjarlægja allt réttindabundið efni, við höfum verið að vinna í þessu allt árið," segir Pálmi og staðfestir að brot úr Dagvaktinni og Næturvaktinni fari sömu leið. Notendur Youtube hafa getað séð glefsur úr þáttunum inni á vefsvæðinu. „Það að réttindavarið efni sé sett á netið ólöglega dregur úr DVD-sölu sem bitnar ekkert síður á leikurum, leikstjórum og öðrum aðstandendum en okkur." Sjónvarpsstöðin ætlar þó að nýta sér Youtube-tæknina og koma á fót vefsvæði Stöðvar 2 inni á Youtube þar sem notendur geta nálgast valið efni og kynningarmyndbrot úr væntanlegum og gömlum þáttum stöðvarinnar.- fgg
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira