Lífið

Landsmót Gígjunnar haldið á Hornafirði um næstu helgi.

Sjöunda landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra, verður haldið á Hornafirði um næstu helgi.

Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið í sjöunda sinn dagana 25 - 27. apríl. Að þessu sinni fer mótið fram á Höfn í Hornafirði í boði Kvennakórs Hornafjarðar.

Fjórtán kvennakórar víðsvegar að af landinu munu taka þátt í mótinu þar sem meðal annars verður boðið upp á vinnuhópa þar sem lögð er áhersla á mismundandi kórtónlist en mótinu lýkur með sameiginlegum tónleikum á sunnudeginum.

Landsmótslagið "Þegar sólin skín" verður frumflutt af öllum kórunum, en það var samið sérstaklega fyrir landsmótið, af tónskáldinu Þóru Marteinsdóttur við texta Guðbjartar Össurarsonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.