Erlent

Ellefu skólastúlkur létust í sprengingu í Tyrklandi

Ellefu skólastúlkur eru látnar eftir að gassprenging olli því að svefnskáli þeirra hrundi saman í Tyrklandi snemma í morgun.

Að minnsta kosti 20 stúlkur eru alvarlega slasaðir og enn er talið að 6 til 8 stúlkur séu fastar undir rústum svefnskálans. Atburðurinn átti sér stað í bænum Balcilar í miðhluta Tyrklands.

Svefnskálinn hýsti skólastúlkur á aldrinum 8 til 16 ára og sváfu um 40 þeirra í skálanum er sprengingin varð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×