Danskir ráðherrar sofandi á fundum með drottningunni 7. september 2008 22:24 Finnst þeim Margrét Danadrottning svona leiðinleg? MYND/AFP
Það er ekki eintóm sæla að vera ráðherra í Danmörku ef marka má nýja bók Flemmings Hansen, fyrrverandi samgönguráðherra. Þar ljóstrar hann því upp að fjölda ráðherra leiðist svo á ríkisráðsfundum með drottningunni að þeir fá sér kríu. Í grein á vef Berlingske Tidende er vitnað til bókarinnar og sagt að atvinnumálaráðherrann Claus Hjort Fredriksen sé manna verstur. Ríkisráðsfundir í Danmörku eru með sama sniði og á Íslandi, en þar eru nýsamþykkt lög á danska þinginu borin undir drottninguna til staðfestingar. Ráðherrarnir koma einn af öðrum og lesa upp lögin og Margrét Danadrottning endurtekur orð þeirra. Ef hún skilur ekki tiltekna hluti eru þeir útskýrðir fyrir henni. Þannig segir Berlingske að ríkisráðsfundirnir geti staðið í allt að einn og hálfan tíma og það reynist sumum ráðherranna hreinlega um megn. Eftir að hafa fengið undirskrift þeirra laga sem þeir leggja fram kemur það sem sagt fyrir að þeim rennur í brjóst. Það fylgir þó sögunni að forsætisráðherra Anders Fogh Rasmussen geti ekki leyft sér þennan munað því hann situr næst drottningunni. Einn þingmanna De Radekale á danska þinginu, fyrrverandi utanríkisráðherrann Nils Helveg Petersen, hefur lagt fram lausn á málinu. Að leggja niður ríkisráðið þar sem það sé sóun á tíma. Það vill Margrét Danadrottning hins vegar ekki og bendir á að fundir ráðsins séu einu tengsl konungsfjölskyldunnar við stjórnmálalífið.
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Fleiri fréttir Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Sjá meira