Erlent

Aung San Suu Kyi að losna úr stofufangelsi

Háttsettur embættismaður innan herforningjastjórnarinnar í Búrma hefur gefið í skyn að leiðtoga stjórnarandstöðunnar Aung San Suu Kyi verði sleppt úr stofufangelsi innan næstu sex mánaða.

Þetta kom fram í máli hans um helgina í Singapore. Þar hefst árlegur fundur Samtaka Suðaustur-Asíuríkja í dag. Samtökin hafa ítrekað lýst yfir miklum vonbrigðum með að herforningjastjórnin skyldi ákveða að framlengja stofufangelsi San Suu Kyi um eitt ár síðastliðið vor. Hún hefur nú setið í stofufangelsi í sex ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×