Erlent

Clinton-hjónin taka nú þátt í kosningabaráttunni af fullum krafti

Hjónin Hillary og Bill Clinton munu hér eftir taka þátt í kosningabaráttu Barak Obama af miklum krafti. Hófu þau baráttuna fyrir Obama á stórum kosningafundi í Pennsylvaníu í gærkvöldi.

Samkvæmt frásögnum í bandarískum fjölmiðlum hafa Hillary og Obama nú sett ágreining sinn til hliðar frá baráttunni um útnefninguna til forsetaframboðsins.

Á næstu dögum munu hjónin koma fram á nokkrum kosningafundum með Joe Biden varaforsetaefni Obama. Þar að auki munu þau styðja við bakið á ýmsum frambjóðendum demókrata sem berjast um sæti á bandaríska þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×