Spenna á landamærum Thailands og Kambódíu 17. júlí 2008 21:15
Vaxandi spenna er á landamærum Thailands og Kambódíu og standa hermenn beggja ríkjanna nú gráir fyrir járnum sitt hvoru megin við landamærin. Deilan snýst um hvort ríkið eigi tilkall til forns búddahofs sem stendur þar í rjóðri. Til átaka kom í tælenskum landamærabæ í morgun þegar lögregla stöðvaði hóp þjóðernissinnaðra Tælendinga sem vildu komast að hofinu til að mótmæla meintum yfirgangi Kambódíumanna. Fjögur hundruð tælenskir hermenn og einir 800 frá Kambódíu hafa verið fluttir að hofinu sem stendur á landamærum ríkjanna norður af Angkor Wat hofunum í Kambódíu, ekki langt frá þar sem landamæri Tælands, Laos og Kambódíu mætast. Deilan blossaði upp á þriðjudaginn þegar kambódískir hermenn handtóku þrjá tælenska mótmælendur við hofið. Íbúar á svæðinu eru sagðir hafa forðað sér af ótta við átök. Alþjóðadómstóllinn úrskurðaði 1962 að Preah Vihear hofið skuli heyra til Kambódíu en svæðið þar í kring er umdeild. Þegar Sameinuðu þjóðirnar settu hofið á heimsminjaskrá í síðustu viku kviknuðu gamlar þjóðernistilfinningar í Tælandi - og hermenn voru fluttir inn á landamærasvæðið. Kambódíumenn telja hermennina vera innan landamæranna en Tælendingar segjast vera fyrir utan. Hun Sen, forsætisráðherra Kambódíu, hefur hvatt starfsbróður sinn í Tælandi til að kalla hermennina til baka, annars geti ástandið farið úr böndunum. Þeir hafa ákveðið að hittast og ræða málin í næstu viku.
Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Innlent Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Innlent Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Innlent Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Innlent Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Erlent Trausti í öðru sæti í Eyjum Innlent Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Innlent Fleiri fréttir Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Tólf tonnum af Kitkat rænt Íranir búa sig undir árásir landherliðs Milljónir No Kings-mótmælenda: „Það verður að stöðva Trump“ Í haldi lögreglu eftir að hafa ekið á gangandi vegfarendur Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Sjá meira