Lífið

HIV-Ísland fagnar 20 ára afmæli

Gunnlaugur Í Grétarsson formaður HIV-Ísland.
Gunnlaugur Í Grétarsson formaður HIV-Ísland.

 

Föstudaginn 5. desember verða liðin 20 ár frá stofnun HIV-Ísland alnæmissamtakanna. Tímamótanna verður minnst með stuttri dagskrá fyrir félagsfólk, heilbrigðisstarfsmenn og velunnara þennan sama dag í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.

Nokkur ávörp verða flutt auk þess sem flutt verður tónlistaratriði. Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, mun formlega opna nýja heimasíðu félagsins, http://www.hiv-island.is. Samhliða dagskrárflutningi verða léttar veitingar í boði.

Meginverkefni félagsins í upphafi var að styðja HIV smitaða, alnæmissjúka og þeirra aðstandendur. Auk þess að standa fyrir fræðslu og forvörnum. Þetta er enn megin markmið félagsins. Sem betur fer heyrir það til undantekninga seinni árin að fólk hérlendis veikist eða látist af völdum alnæmis, þökk sé þeim lyfjum sem komu á markaðinn fyrir rúmum áratug síðan. Það er öllum mikið áfall að greinast með hiv og hefur það mikil áhrif á líf viðkomandi. Því miður eru enn ríkjandi miklir fordómar fyrir þessum sjúkdómi.

Það sem af er árinu hafa tíu einstaklingar greinst hiv-jákvæðir hér á landi. Er það tíu einstaklingum of mikið. Í nágrannalöndum okkar hefur nýgreining hiv-smits aukist hin síðustu ár. Víða um heim er alnæmi gífurlegt vandamál, svo sem í Afríku sunnan Sahara, en hiv-smit breiðist mjög hratt út bæði í Austur-Evrópu, á Indlandi og í Kína. Við megum því hvergi sofna á verðinum heldur auka fræðslu og forvarnir eftir því sem kostur er. Að koma í veg fyrir eitt nýsmit er mikils virði.

Rauði borðinn, tímarit HIV-Ísland alnæmissamtakanna, er kominn út í tilefni dagsins og hefur blaðið þegar verið sent til fjölmiðla. Þar koma fram ýmsar upplýsingar um starfsemi samtakanna HIV-Ísland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.