Sæti í Öryggisráðinu sagt í hættu Óli Tynes skrifar 12. október 2008 12:15
Fjölmiðlar á Norðurlöndunum eru farnir að velta því fyrir sér hvort efnahagskreppan á Íslandi verði til þess að landið fái ekki sæti í öryggisráðinu. Kosið verður í ráðið næstkomandi föstudag. Það eru þrjú lönd sem sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu Ísland, Austurríki og Tyrkland. Norska blaðið Aftenposten segir að það sé svo jafnt með þeim að ómögulegt sé að spá um úrslitin. Talið sé mögulegt að efnahagskreppan á Íslandi geti ráðið þar úrslitum. Þá sé deilan við Breta notuð gegn Íslandi í þeim hrossakaupum sem eigi sér stað í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Aftenposten talar við Kristínu A. Árnadóttur sem leiðir sókn Íslands í Öryggisráðið. Hún telur ekki að þetta hafi áhrif. Kristín bendir á að kreppan nái til allrar heimsbyggðarinnar. Aftenposten talar einnig við Morten Wetland, sendiherra Noregs hjá Sameinuðu þjóðunum. Wetland segir að Noregur styðji ekki Ísland vegna efnahagslegrar stöðu þess, hver sem hún sé, heldur þeirra gilda sem landið stendur fyrir. Hann segir að Norðmenn og muni áfram styðja Ísland með ráðum og dáð.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira