Lífið

Hrægammur á hommabörum

Ástralinn leitaði að stelpum til að sofa hjá á hommabörum á sínum yngri árum.
Ástralinn leitaði að stelpum til að sofa hjá á hommabörum á sínum yngri árum.

Ástralski leikarinn Hugh Jackman sótti hommabari á sínum yngri árum í von um að ná sér í konur. „Ég ætti ekki að segja þetta en þegar ég var nítján ára fórum ég og vinur minn oft í partí þar sem 80 prósent fólksins voru hommar. Þar voru líka 18 prósent af stelpum sem voru orðnar leiðar á því að gagnkynhneigðir karlmenn reyndu við þær og síðan voru þarna hrægammar eins og við tveir," sagði Jackman. „Við vorum þarna til klukkan tvö á nóttunni þegar stelpurnar voru orðnar mjög drukknar og óskuðu þess að þær væru ekki innan um eintóma samkynhneigða menn. Ég var algjör blóðsuga og hrægammur."

Orðrómur um að Jackman væri hommi breiddist út eftir að hann lék hinn samkynhneigða Peter Allen í Broadway-leikritinu The Boy From Oz. Hann er orðinn frekar þreyttur á þessum sögum. „Mér finnst fáránlegt að fólk sé dæmt eftir kynhneigð sinni. Í Ástralíu er ekki spáð svona mikið í þetta. Ég lék samkynhneigðan mann. Ég leit eiginlega á það sem hrós."

Jackman leikur í myndinni X-Men Origins: Wolverine sem verður frumsýnd næsta vor. Hann ætlar að hætta að leika í X-Men myndunum ef hún gengur ekki vel. „Ef það kemur í ljós strax annan eða þriðja maí þá geng ég í burtu sáttur," sagði hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.