Innlent

Í gæsluvarðhald til 8. september

Mynd/ Andri.
Mynd/ Andri.

Nú undir kvöld úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur tvo karlmenn í gæsluvarðhald til 8. september vegna grunsamlegs mannsláts á Skúlagötu í Reykjavík í gær.

Karlmaður á sjötugsaldri fannst látinn um kvöldmatarleytið, en sá sem kom að honum var í annarlegu ástandi. Hann hefur, ásamt öðrum manni sem lögreglan handtók í morgun, verið í skýrslutökum í dag.

Í samtali við Vísi sagðist Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, ekkert vilja tjá sig um framburð mannanna við skýrslutökur.

 
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×