Spyr um nákvæman aðdraganda að skipan Þorsteins 7. febrúar 2008 16:18 Árni Mathiesen hefur sætt harðri gagnrýni fyrir dómaraskipan í Héraðsdómi Norðurlands eystra og Austurlands skömmu fyrir jjól. MYND/GVA
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri – grænna, fer fram á svör um nákvæman aðdraganda þess að Þorsteinn Davíðsson var skipaður héraðsdómari fyrir norðan og austan. Þeirri fyrirspurn er beint til Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra í málinu.. Fram kom á Vísi fyrr í dag að Árni Þór hefði lagt fram spurningar til Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra varðandi skipanir héraðsdómara almennt og hvort fylgt hefði verið mati dómnefndar sem metur hæfi dómara. Í fyrirspurninni nú spyr Árni nafna sinn fjármálaráðherra hvenær hann var settur til að gegna embætti dómsmálaráðherra við skipan héraðsdómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Héraðsdóm Austurlands. Enn fremur hvenær hann hafi fengið málið til meðferðar og hvaða gögn hann hafi fengið til að byggja ákvörðun sína á. Árni Þór vill einnig vita hvort settur dómsmálaráðherra aflaði sér nýrra gagna í málinu og hversu langan tíma málið var til meðferðar hjá honum og hvaða gögn séu því til staðfestingar. Þá spyr Árni hversu lengi málið hafi verið til meðferðar hjá dómnefndinni sem mat þrjá umsækjendur hæfari en Þorstein og hvenær umsækjendum var sent rökstutt álit dómnefndar um hæfni þeirra. Enn fremur er spurt hversu langan tíma umsækjendur hafi til að bregðast við því með athugasemdum. Loks spyr þingmaðurinn hvort settur dómsmálaráðherra hafi leitað til meðmælenda einstakra umsækjenda og ef svo hafi verið hvenær það hafi verið gert. Þá er spurt hvaða áhrif sé talið að meðmæli hafi haft á ákvörðun ráðherrans. Í greinargerð með spurningunum er vísað til þess að í svari við fyrirspurn í óundirbúnum fyrirspurnatíma þann 31. janúar hafi forsætisráðherra svarað því til að hann hefði ekki svör á reiðum höndum um einstakar tímasetningar varðandi málið. Ráðherra hafi hins vegar bent á að unnt væri að afla þeirra upplýsinga með formlegri fyrirspurn. Af því tilefni sé þessi fyrirspurn lögð fram.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Erlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Fleiri fréttir „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Sjá meira