Átta árangurslaus fjárnám hjá formanni bæjarráðs SB skrifar 9. júní 2008 16:14 Sólin sest í Vogum. Mynd/Valgarður
Sýslumaðurinn í Keflavík hefur gert átta árangurslaus fjárnám hjá Herði Harðarssyni, formanni bæjarráðs í Vogum. Hörður segist ætla að axla ábyrgð ef málið fer í gjaldþrot. Hann segir heift og persónuleg illindi hlaupin í deilur bæjarstjórna Voga. "Ég er að vinna í mínum skuldamálum. Ég geri mér fyllilega grein fyrir alvarleika málsins og veit að ef þetta fer lengra þá er ég ekki hæfur til að gegna mínu embætti," segir Hörður. Hörður er sjálfstæður atvinnurekandi. Hann segir fjárnámin tengjast skattamálum. Þetta séu "gamlar syndir". Vísir.is leitaði til Sambands íslenskra sveitarfélaga eftir upplýsingum um hvaða reglur gilda um hæfi bæjarstjórnarfulltrúa þegar gjaldþrot ber að dyrum. "Þú tekur ekki mannréttindi af mönnum þó þeir verði gjaldþrota, það hefur ekki áhrif á hæfi manna til að gegna störfum í bæjarstjórn," sagði Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hjá Hag- og upplýsingasviði. Hörður segist hins vegar ætla að axla fulla ábyrgð ef tjöldin falla. Hann er ekki bara bæjarfulltrúi heldur einnig formaður bæjarráðs. Fréttir af illdeilum í bæjarstjórn Voga hafa verið fyrirferðarmiklar síðustu daga. Hörður er fulltrúi meirihluta E-listans. Á síðasta bæjarstjórnarfundi krafðist Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi H-listans, að Hörður Harðarson, bæjarfulltrúi E-listans, yrði víttur vegna ásakana á hendur henni. "Manni finnst undarlegt að upplýsingar um mín persónulegu fjármál séu komin í fjölmiðla," segir Hörður sem neitaði því í DV í dag að bæjarstjórnin logaði í illdeilum. Hann sagði að í Vogunum skini sól í heiði. Nú játar Hörður því að kannski sé sólin í Vogunum sest. "Það virðist komin heift og persónuleg illindi í bæjarstjórnina," segir hann.
Tengdar fréttir Bæjarstjórn Voga logar í illdeilum Inga Sigrún Atladóttir, fulltrúi H-listans í bæjarstjórn Voga, sakar forseta bæjarstjórnar um spillingu. Hún segir mágkonu forsetans hafa komið í veg fyrir að byggt yrði félagsheimili fyrir kvenfélag bæjarins þrátt fyrir vilja meirihluta byggingarráðs. Inga Sigrún er sjálf brigsluð um óeðlileg vinnubrögð. 5. júní 2008 12:48 Ekki illdeilur heldur smásmugulegt skítkast Bæjarfulltrúar E-listans í Vogum saka Ingu Sigrúnu Atladóttir, bæjarfulltrúa H-listans, um ósannsögli. Í viðtali á visi.is í gær sakaði Inga Sigrúnu forseta bæjarstjórnar Voga um að hygla mágkonu sinni í E-listanum. Mágkonan segir ástandið í bæjarstjórn Voga ekki illdeilur heldur smásmugulegt skítkast. 6. júní 2008 11:03 Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira
Bæjarstjórn Voga logar í illdeilum Inga Sigrún Atladóttir, fulltrúi H-listans í bæjarstjórn Voga, sakar forseta bæjarstjórnar um spillingu. Hún segir mágkonu forsetans hafa komið í veg fyrir að byggt yrði félagsheimili fyrir kvenfélag bæjarins þrátt fyrir vilja meirihluta byggingarráðs. Inga Sigrún er sjálf brigsluð um óeðlileg vinnubrögð. 5. júní 2008 12:48
Ekki illdeilur heldur smásmugulegt skítkast Bæjarfulltrúar E-listans í Vogum saka Ingu Sigrúnu Atladóttir, bæjarfulltrúa H-listans, um ósannsögli. Í viðtali á visi.is í gær sakaði Inga Sigrúnu forseta bæjarstjórnar Voga um að hygla mágkonu sinni í E-listanum. Mágkonan segir ástandið í bæjarstjórn Voga ekki illdeilur heldur smásmugulegt skítkast. 6. júní 2008 11:03