Segist einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn 14. mars 2008 16:17 Annþór Kristján Karlsson
Annþór Kristján Karlsson sem sat í einangrun vegna svokallaðs UPS smyglmáls neitar að hafa komið nálægt innflutningi á fíkniefnunum. Samkvæmt heimildum Vísis segist hann við yfirheyrslur einungis hafa átt í steraviðskiptum við annan bróðurinn sem handtekinn var vegna málsins. Í Fréttablaðinu í morgun kemur hinsvegar fram að Lögreglu þyki framburður Annþórs afar ótrúverðugur og mun hann hafa orðið margsaga um einstök atvik málsins. UPS smyglmálið snýst um innflutning á 4,6 kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni. Þrír menn, auk Annþórs, voru handteknir vegna málsins. Það eru bræðurnir Jóhannes Páll og Ari Gunnarssynir auk æskuvinar þeirra Tómasar Kristjánssonar. Tómas var starfsmaður hraðflutningafyrirtækisins UPS en fíkniefnin fundust í bíl frá fyrirtækinu þann 15.nóvember á síðasta ári. Fram hefur komið í fjölmiðlum að rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós að innflutningur á fíkniefnum í gegnum fyrirtækið hafi staðið yfir síðan á vormánuðum 2005. Bræðrunum hefur verið sleppt en Tómas mun sitja í gæsluvarðhaldi til 18.apríl. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Annþór alfarið neitað því að tengjast innflutningi á fíkniefnunum en viðurkennir í yfirheyrslum að hafa átt í steraviðskiptum við Ara Gunnarsson. Þeir hafi kynnst þegar Annþór kom úr afplánun í ágúst á síðasta ári eftir að hann fór að æfa niður í World Class, en Ari var einkaþjálfari í líkamsræktarstöðinni á þeim tíma. Annþóri var sagt að Ari væri maðurinn sem gæti útvegað stera. Í framhaldi af því hafi Annþór keypt af honum stera og þeirra viðskipti hafi einungis verið á þeim nótunum. Lögregla telur hinsvegar að Annþór hafi komið að fjármögnun, skipulagningu og innflutningi fíkniefnanna. Þegar Annþór var handtekinn í tengslum við UPS málið fann lögregla töluvert magn af sterum í húsleit sem gerð var á heimili Annþórs í kjölfarið. Nú er beðið eftir niðurstöðum úr tölvugögnum sem lögreglan lagði hald á í tengslum við málið. Þeirra er að vænta á næstu vikum. Karl Georg Sigurbjörnsson verjandi Annþórs vildi ekkert tjá sig um málið þegar eftir því var leitað við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira