Kjarnorkusprengja undir ísnum á Grænlandi? 11. nóvember 2008 12:26
Bandarísk kjarnorkusprengja er talin liggja undir ísnum á norðvesturhluta Grænlands, nærri Thule ratsjárstöðinni. Bandarísk sprengjuflugvél fórst þar fyrir fjörutíu árum. Ein fjögurra kjarnorkusprengja um borð fór í sjóinn og fannst aldrei. Eldur kviknaði í B52-sprengjuflugvél á flugi yfir Norðvestur-Grænlandi 1968. Breska ríkisútvarpið BBC fjallar um málið og vitnar til skjala sem leynd hefur verið létt af. Fjórar kjarnorkusprengjur voru í flugvélinni auk sprengiefnis sem nota átti til að framkalla sprengingu í þeim. Það sprengiefni sprakk í slysinu en ekki kjarnorkusprengjurnar sjálfar sem voru ekki virkar. Þrjár sprengjurnar brotnuðu í sundur og samkvæmt gögnum mun geislavirkt efni hafa dreifst um stórst svæði. Ein sprengjan brotnaði hins vegar ekki. Ísinn undir henni mun hafa bráðnað og hún sokkið á hafsbotn undan norð vesturströnd Grænlands nærri Thule-radarstöðinn. Samkvæmt gögnunum mun hennar hafa verið leitað í nokkurn tíma án árangurs. Að lokum hafi þeirri leit verið hætt með þeim rökum að ef bandarískum sérfræðingum með nýjustu tækni tækist ekki að finna hana gætu aðrir það ekki og þannig ómögulegt að vopnið rataði í hendur Sovétmanna. Auk þess væri óhætt að skilja sprengjuna eftir á hafsbotni. Umhverfisáhrif yrðu minniháttar á jafn stóru hafsvæði og um væri að ræða. Síðan þetta gerðist hefur margt komið fram sem bendi til annars að sögn fréttamanns BBC. Hann hefur rætt við grænlenska veiðimenn á svæðinu sem merki þetta á iðrum sela sem þeir veiði. Þau séu oft uppþornuð. Þorpsbúar nærri slysstað hafa sumir veikst óvænt og fengið sjúkdóma sem ógjörningur hafi verið að greina. Danskir björgunarmenn sem sendir voru að flaki flugvélarinnar eftir slysið hafa sumir veikst og telja að öryggi þeirra hafi ekki verið tryggt, þeir hafi ekki fengið hlífðarbúnað.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira