Erlent

Áróðursstjóri al-Kaída í lífstíðarfangelsi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Teikning af réttarhöldunum.
Teikning af réttarhöldunum. MYND/MSNBCmedia.msn.com

Al-Kaída-áróðursstjórinn Ali Hamza al-Bahlul var dæmdur í lífstíðarfangelsi í gær af herdómstól Bandaríkjamanna í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu.

al-Bahlul annaðist gerð fjölda áróðursmynda fyrir hryðjuverkasamtökin og var um leið eins konar fjölmiðlafulltrúi. Hann tók ekki til varna í málinu og sagði réttarhöldin skrípaleik einn. Eftir að dómur var kveðinn upp kvaddi hann sér hljóðs og hélt lofræðu um al-Kaída-leiðtogann Osama bin Laden. Ekki er enn ljóst hvar al-Bahlul situr dóminn af sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×