Erlent

Dönsk sveitarfélög hemji afbrotaunglinga

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Þau sveitarfélög í Danmörku sem standa sig ekki í stykkinu við að halda ungmennum frá glapstigu afbrota og ósæmilegs lífernis fá að finna fyrir því þegar kemur að því að úthluta fé úr ríkissjóði.

Þetta segir fjármálaráðherrann Lars Løkke Rasmussen sem boðar nýtt verklag við samningu fjárlaga í Danmörku. Hér eftir verður ætlunin að refsa þeim sveitarfélögum sem ekki hafa uppi forvarnir og beita sér auk þess af krafti í málefnum ungra afbrotamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×