Erlent

Tvöhundruð og fimmtíu bresk börn í afbrotum daglega

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Tvöhundruð og fimmtíu börn eru staðin að glæpum í Bretlandi hvern dag samkvæmt tölum frá lögreglu þar í landi.

Fjöldi barna á aldrinum 10 - 17 ára sem fremja afbrot hefur þó dregist saman um tíu prósent frá því á sama tíma í fyrra en þá voru má 103.955 ungra afbrotamanna tekin fyrir af breskri lögreglu eða dómstólum.

Mest er um afbrot unglinga á Norðaustur-Englandi en hvað sem því líður segir dómsmálaráðherrann David Hanson að það sé ánægjuefni að dregið hafi úr glæpum með ungmenna og forvarnastarf skili sér greinilega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×