Obama vill neyðarfjárvetingu til bílaframleiðenda 11. nóvember 2008 12:22 MYND/AP
Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, hefur beðið George Bush, fráfarandi forseta, um að styðja tillögu um neyðarfjárveitingu til bílaframleiðenda í Bandaríkjunum til að koma í veg fyrir gjaldþrot. Bush og Obama funduðu í Hvíta húsinu í gærkvöldi. Fundur þeirra var sá fyrsti frá forsetakosningunum fyrir viku. Bílaframleiðendurnir General Motors, Ford og Chrysler eru allir í kröggum og hafa óskað eftir neyðaraðstoð upp á 25 milljarða bandaríkjadala til að koma í veg fyrir gjaldþrot. General Motors ætlar að segja upp nærri sex þúsund starfsmönnum en verð á hlutabréfum í félaginu hefur ekki verið lægra í sex áratugi og talið nær víst að það falli frekar. Á fundi Obama og Bush var rætt um utanríkismál og valdaskiptin í janúar en ætla má að efnahagsmálin hafi verið helsta umræðuefnið. Ekkert hefur verið gefið upp opinberlega um hvað þeim fór á milli en New York Times greinir frá því að Obama hafi beðið Bush um stuðning við neyðaráætlun fyrir bílaframleiðendur. Að sögn blaðsins hafi Bush gefið til kynna að hann væri tilbúinn til að styðja heildstæða áætlun fyrir atvinnuvegina og þar með aðstoð við bílaframleiðendur. Þá yrðu flokksbræður Obama í Demókrataflokknum þó að láta af andstöðu við fríverslunarsamning milli Bandaríkjanna og Kólumbíu sem stjórn Bush hefur unnið að. Talið er óvíst að demókratar verði við því og ákveði þá að bíða eftir valdaskiptunum sem verða 20. janúar næstkomandi. Óvíst er þó að bandarískir bílaframleiðendur geti beðið svo lengi.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira