Þrefalt dýrara á Hróarskeldu 26. nóvember 2008 06:00 Búast má við töluvert færri Íslendingum á Hróarskeldu næsta sumar en undanfarin ár. „
Ég veit ekki hvernig þetta verður. Ég á ekki von á því að það verði jafnmikil þátttaka og síðustu ár," segir Tómas Young, íslenskur tengiliður Hróarskelduhátíðarinnar í Danmörku. Miðaverð á hátíðina, sem er haldin á hverju sumri, hefur hækkað upp úr öllu valdi eftir fall íslensku krónunnar. Miðasalan fyrir næstu hátíð hefst 1. desember og kostar miðinn heilar 42.900 krónur, sem er 13 til 16 þúsund króna hækkun á milli hátíða. Fyrir hátíðina í sumar var miðinn seldur á bilinu 24 til 30 þúsund krónur og fór verðið eftir gengi krónunnar í hvert skipti. „Þetta er ekkert Hróarskeldutengt. Þetta er bara efnahagsástandið og ég held að allir séu að draga saman seglin. Kannski verða það þeir allra hörðustu sem halda áfram og láta sig hafa það sama hvað það kostar," segir Tómas, spurður um þetta háa miðaverð. Til frekari samanburðar þá kostaði miðinn á hátíðina í fyrra aðeins 16 til 17 þúsund krónur sem er næstum þrisvar sinnum lægra en nú og því hafa sviptingarnar verið gríðarlegar í miðasölunni á örskömmum tíma. Fjöldi Íslendinga á Hróarskeldu sem keypti miða hérlendis tvöfaldaðist á árunum 2004 til 2007 og fór úr rúmum 760 manns í rúm 1.600. Á þessu ári kvað aftur á móti við nýjan tón því þá hrapaði fjöldinn niður í 860 manns. „Ég held að þetta sé of dýrt fyrir alla Íslendinga. Danska krónan er 25 kall. Ódýrasta flugið til Hróarskeldu er 41 þúsund, þannig að þetta er 84 þúsund kall í minnsta lagi. Það er of mikið. Þó að þetta sé góð hátíð og sú besta í heimi gæti þetta verið of stór biti," segir Tómas og líst ekki á blikuna. - fb
Mest lesið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Útför Megasar Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Sjá meira