Krepputilboð handa Ameríkönum í Feneyjum 8. apríl 2008 15:14 Síki í Feneyjum.
Hið fornfræga veitingahús Harry's Bar í Feneyjum, þar sem rithöfundurinn Ernest Hemingway sat löngum stundum að áti og stífri martini-drykkju, býður amerískum ferðamönnum nú rausnarlegt krepputilboð til huggunar þegar bandaríkjadalur stendur höllum fæti gagnvart evrunni. Á skilti utan við staðinn er ritað: „Harry's Bar í Feneyjum býður amerískum fórnarlömbum rándýrra lána nú 20% afslátt af öllum réttum á matseðlinum á meðan ástandið jafnar sig." Að sögn eiganda staðarins hefur amerískum viðskiptavinum fækkað verulega síðustu mánuði enda fást nú eingöngu 0,64 evrur fyrir bandaríkjadal á móti 1,10 árið 2002. Ferðamálaráð Ítalíu gaf það út í nýlegri skýrslu að staða bandaríkjadals gagnvart evru væri um þessar mundir stærsta hindrunin á ferðamannastraumi frá Bandaríkjunum til Evrópu. Tilboð Harry's Bar á sér sögulegar rætur þar sem barinn var opnaður árið 1931 fyrir peninga sem barþjónn á hóteli í Feneyjum fékk að gjöf frá Bandaríkjamanninum Harry Pickering til að greiða af láni. Barþjónninn skírði barinn og son sinn í höfuðið á Harry en sonurinn, Arrigo, á og rekur barinn nú. Rithöfundurinn Ernest Hemingway kom Harry's Bar á kortið þegar hann nefndi hann á nafn í skáldsögunni Across the River and into the Trees sem kom út árið 1950 en barinn var helsta afdrep Hemingways í Feneyjum. Reuters greindi frá.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira