Erlent

Brown vill kosningaúrslit í Simbabve strax

Gordon Brown.
Gordon Brown. MYND/AP

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, krafðist þess í dag að úrslit forsetakosninga í Afríkuríkinu Simbabve yrðu gerð ljós hið fyrsta. Sagði hann það nauðsynlegt til þess að lýðræðislegur vilji þjóðarinnar kæmi í ljós.

Kosningarnar fóru fram um helgina en yfirvöld í landinu hafa enn ekki birt niðurstöður þeirra. Fréttir bárust þó af því í morgun að fulltrúar stjórnarflokks Simbabve hefðu viðurkennt að að stjórnarandstæðingurinn Morgan Tsvangirai hefði fengið flest atkvæði í forsetakosningunum. Hann hefði þó ekki fengið hreinan meirihluta og því yrði að kjósa aftur á milli hans og Roberts Mugabe sitjandi forseta.

Gordon Brown sagði í dag að hann hefði rætt við Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku, um málefni Simbabve og þá hygðist hann hafa samband við formann Afríkusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×