Ögmundur vill að RÚV greini frá launakostnaði 17. mars 2008 13:13
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG segir að sú staðreynd að Ríkisútvarpið neiti að láta Vísi í té upplýsingar um laun æðstu stjórnenda sé dæmi um það sem flokkur hans hafi varað við þegar stofnunin var gerð að opinberu hlutafélagi. Hann segist þeirrar skoðunar að launamál RÚV eigi ekki að fela. Ríkisútvarpið neitar að láta Vísi í té upplýsingar um laun dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins og dagskrárstjóra útvarps, þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi úrskurðað að RÚV sé skylt að veita þessar upplýsingar. Óskar Hrafn Þorvaldsson, ritstjóri Vísis, óskaði eftir upplýsingum um laun Þórhalls Gunnarssonar, ritstjóra Kastljóss og dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, og Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið neitaði að upplýsa um þetta og kærði Óskar því Ríkisútvarpið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin úrskurðaði að RÚV skyldi veita kæranda, Óskari Hrafni, aðgang að ráðningarsamningi fyrirtækisins við Þórhall Gunnarsson og Sigrúnu Stefánsdóttur. RÚV sendi þá nefndinni erindi þar sem þess var farið á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað og mun RÚV leita álits dómstóla á úrskurði nefndarinnar. „Þetta er nákvæmlega það sem við vorum að vara við, að fyrirtækið myndi lokast enn meira," sagði Ögmundur í hádegisviðtalinu á Stöð 2. Hann sagðist almennt vera á þeirri skoðun að öll laun eigi að vera upp á borðinu en þegar komi að stofnanir í eigu ríkisins sé málið enn augljósara. Ögmundur benti á að þegar um væri að ræða fyrirtæki sem fjármagnað væri með skattfé myndist augljós réttur hjá almenningi til að hafa svona hluti uppi á borðum. „Við erum lögþvinguð til að greiða peninga til þessarar stofnunar og þá eigum við ákveðnar kröfur á þessa stofnun," sagði Ögmundur.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Sjá meira