Reyndi að mata látinn föður sinn 2. mars 2008 14:35 Manni gefið að borða á elliheimili. MYND/Getty Images
Þroskaheftur maður sem bjó með öldruðum foreldrum sínum í Bournemouth í Bretlandi reyndi að næra föður sinn eftir að hann var látinn. Lögregla var kölluð til þegar nágrannar létu vita um að ekki væri allt með felldu. Í íbúðinni sem Paul Dumsday bjó í ásamt foreldrum sínum á níræðisaldri fann lögregla þremenningana, en foreldrarnir voru báðir látnir. Paul hélt að foreldrar sínir væru enn á lífi. Hann hafði sett servíettur um háls föður síns og reynt að mata hann þrátt fyrir að hann hefði verið látinn í þó nokkurn tíma. Móðir hans hafði látist nokkrum dögum áður en lögregla kom á staðinn. Tónlist hljómaði enn í eyrum hennar úr heyrnartólum Walkman tækis. Dánardómsstjóri sagði lögreglu að ekki væri hægt að komast að dánarorsök föðurins þar sem lík hans hefði rotnað of mikið. Móðirin lést vegna vatnssöfnunar í lungum sem var afleiðing hjartasjúkdóms. Hún hafði einnig þjáðst af næringarskorti, var með sár á fótum og æxli í öðru nýra. Félagsmálayfirvöld höfðu ekki hugmynd um aðstæður fjölskyldunnar fyrir atburðinn. Móðirin var samkvæmt heimildum dagblaðsins Bournemouth Echo ekki andlega heil. Paul var samþykkti að vera lagður inn á St Ann sjúkrahúsið í Poole eftir að lögregla var kölluð til. Talsmaður hagsmunasamtaka í Poole sagði að erfitt væri fyrir heilbrigðisyfirvöld að komast að slíkum aðstæðum fólks innan veggja heimilis ef það léti ekki vita. Málið væri áminning til almennings um að fylgjast með nágrönnum sínum og þeim sem búi einir. Vandamálið lægi ekki síst í því að fólk vildi halda sjálfstæði sínu á eldri árum og búa eitt án þess að aðrir skiptu sér af því.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Konur í Framsókn sjá að sér Innlent Fleiri fréttir Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Sjá meira