Enginn starfsmaður lögreglunnar aðstoðaði Annþór 20. febrúar 2008 15:14 Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir frekari gögnum í fangaflóttamálinu. MYND/Vilhelm
Ekki er grunur um að starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi komið að flótta Annþórs Kristjáns Karlssonar úr fangelsi á föstudag með refsiverðum hætti. Eftirlit með fanganum var ekki í samræmi við gildandi verklagsreglur. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar sem enn hefur ekki lokið rannsókn á málinu þrátt fyrir að hafa ítrekað sagt að rannsóknin væri á lokastigi. Lögregla segir að ítarleg innanhúsrannsókn hafi farið fram á þeim atriðum sem úrskeiðis fóru og leiddu til þess að Annþór slapp úr fangageymslum lögreglunnar við Hverfisgötu. Segir lögregla að rannsóknin standi enn yfir og að kröfu lögreglustjóra sé verið að afla frekari gagna auk þess sem nánar er verið að fara yfir alla þætti málsins, frá móttöku fangans deginum áður, til framkvæmdar vistunar, eftirlits, skráningar og fleira. Lögregla segir að þegar liggi fyrir að að móttaka, vistun og eftirlit með fanganum hafi ekki verið í samræmi við gildandi verklagsreglur. Einnig liggi fyrir að fanganum fylgdu ekki nauðsynlegar upplýsingar um tilhögun og framkvæmd vistunar. Hins vegar séu ekki uppi grunsemdir um að starfsmenn embættisins hafi komið að málinu með refsiverðum hætti.Enn fremur segir í tilkynningu lögreglunnar að þegar niðurstöður rannsóknar liggi fyrir verði metið hvernig hægt verði að koma í veg fyrir viðlíka atvik aftur. Jafnframt mun lögreglustjóri upplýsa dóms- og kirkjumálaráðuneytið um niðurstöður athugunar embættisins og hvernig brugðist verði við þeim atriðum sem aflaga fóru.Þá hefur lögreglustjóri einnig ákveðið að flýta fyrirhugaðri úttekt innri endurskoðunar embættisins á starfsemi fangamóttöku lögreglunnar á höfuðborgarsvæpinu en hún átti ekki að vera á dagskrá fyrr en síðar á þessu ári. „Í þeirri athugun, sem þegar er hafin, verður farið heildstætt yfir móttöku fanga hjá embættinu og gengið úr skugga um að sú móttaka sé eins og reglur kveða á um. Úttekt innri endurskoðunar LRH mun ná til allra þátta sem snerta móttöku, vistun og meðferð fanga hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu," segir í tilkynningu lögreglunnar.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira