Ræður ráðamanna á erlendri tungu liggi fyrir á íslensku 23. janúar 2008 10:03 MYND/Sigurður Jökull
Samfylkingarmennirnir Mörður Árnason og Karl V. Matthíasson hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem því er beint til forseta Íslands og ráðherra að ræður og ávörp sem þeir flytja á erlendri tungu liggi fyrir á íslensku samtímis eða svo skjótt sem auðið er. Fram kemur í greinargerð með tillögunni að það hafi færst í vöxt á tímum ört vaxandi alþjóðasamskipta að ræður og ávörp séu samin og flutt á öðru máli en íslensku. Sumir þessara texta séu mikilvægir fyrir íslenskt samfélag og því eðlilegt að slíkar ræður og ávörp æðstu ráðamanna liggi fyrir á íslensku, helst við flutning eða birtingu en ella eins skjótt og auðið er. „Með þeim hætti geta allir landsmenn kynnt sér hvað sagt er í þeirra nafni við erlenda menn, og með .opinberri' þýðingu er ekki hætta á að orð ráðamanna á erlendri grund eða við alþjóðleg tækifæri sæti rangþýðingu eða mistúlkun vegna tungumálaörðugleika. Þá má ætla að íslenskur texti greiði fyrir við vinnslu og flutning frétta á Íslandi af slíkum ræðuhöldum," segir ennm fremur í tillögunni. Sjá Mörður og Karl fyrir sér að fela mætti þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins þessi verkefni ef þau eru vandleyst á skrifstofum forseta, ráðherra og annarra ráðamanna. Í tillögunnier birt yfirlit um óþýddar ræður og ávörp á vefsetrum forseta Íslands og forsætisráðherra árið 2007 og utanríkisráðherra í júní til desember sama ár. Er þar um að ræða nærri 30 ræður oig ávörp.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira