Ítreka áform um samstarf í jarðhitamálum 21. janúar 2008 18:00 Frá undirritun samningsins í dag. MYND/Forsetaembættið
Reykjavík Energy Invest, útrásararmur Orkuveitu Reykjavíkur, undirritaði í dag yfirlýsingu ásamt ríkisstjórn Afríkuríkisins Djíbútí um samstarf í jarðhitamálum. Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunnu að yfirlýsingin komi í kjölfar sérleyfis sem REI fékk til nýtingar á Assal-misgenginu í febrúar 2007. Verið er að ljúka fýsileikakönnun á jarðhitanýtingunni og verði niðurstaða hennar jákvæð er ráðgert að skrifa undir samninga um framkvæmdir og raforkuverð fyrir marslok 2008. Samkvæmt yfirlýsingunni í dag íteka samningsaðilar áform sín um að útvega íbúum og atvinnulífi í Djíbútí ódýrari og umhverfisvænni orku. Allt rafmagn í landinu er nú framleitt í díselvélum en talið er að hægt sé að sinna nánast allri raforkuþörf landsins með virkjun jarðhita. Undirritunin fór fram í Dúbæ að viðstöddum forsetum Djíbútí og Íslands, þeim Ismail Omar Guelleh og Ólafi Ragnari Grímssyni. Þar stendur nú yfir alþjóðleg umhverfis- og orkuráðstefna. Við sama tækifæri skrifuðu Mohamed Ali Mohamed, orku- og auðlindaráðherra Djíbútí, og Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra undir yfirlýsingu um samstarf og sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Í henni segir að í ljósi vaxandi mengunar í veröldinni og vaxandi þarfar fyrir umhverfisvæna orkugjafa muni ríkin tvö starfa saman að þróun jarðhitamála til hagsbóta fyrir íbúa landanna. Íslenskir vísindamenn hafa um árabil starfað að jarðhitaverkefnum í austanverðri Afríku, þar með talið í Djíbútí og hingað hafa fjölmargir afrískir nemendur sótt menntun á sviði jarðhitanýtingar á vettvangi Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna. Svæðið sem rannsóknirnar munu beinast að er Assal-sprungan sem er á nyrsta hluta plötuskilanna sem ná frá Djíbútí langt suður eftir Afríku austanverðri.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira