Innlent

Rannsaka hvort Ísland sé að verða fjölmyntasamfélag

MYND/GVA

Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja nokkrar rannsóknarstofnanir á vegum tveggja háskóla í landsins til rannsókna á því hvaða áhrif aukin notkun erlendra mynta hefur á vörumarkað, fjármálamarkað og samfélag á Íslandi almennt. Ennfremur er fyrirhugað að skoða áhrif mismunandi tenginga við evru á ofangreinda þætti, eins og segir í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu.

Meginspurningarnar eru tvær, annars vegar hvort á Íslandi sé að verða til fjölmyntasamfélag og hvaða áhrif það hefur á markaði og samfélag og hins vegar hvaða afleiðingar ólíkar tengingar við evru hafa á íslenskan fjármálamarkað og fjármálastöðugleika. Fyrirhugað er að niðurstöður liggi fyrir í ágúst 2008 í formi skýrslna og/eða rannsóknaritgerða og verði kynntar opinberlega í kjölfarið.

Þær stofnanir sem fá styrk til verkefnisins eru Rannsóknastofnun í Fjármálum við Háskólann í Reykjavík, Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst og Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×