Innlent

Hollendingur tekinn með kókaín í Leifsstöð

Maðurinn var með tæp fjögurhundruð grömm af kókaíni innvortis.
Maðurinn var með tæp fjögurhundruð grömm af kókaíni innvortis.

Hollenskur karlmaður var tekinn í Leifsstöð í gærkvöldi með á fjórða hundrað gramma af kókaíni innvortis. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald.

Maðurinn, sem er um fimmtugt, var að koma til landsins frá Amsterdam þegar tollverðir höfðu hendur í hári hans. Lögregla annast rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×