Innlent

Unglingsstúlka fékk steypustyrktarjárn í lærið

Steypustyrktarjárn stakkst inn í læri á 15 ára stúlku þar sem hún var á hafnarsvæðinu í Sandgerði í gærkvöldi.

Eldri stúlkur höfðu bundið hjólbarða aftan í bíl sinn og voru að draga krakka í honum, þegar hann slóst til hliðar að járninu, sem stúlkan fékk í lærið. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem gert var að sárinu.-Lögregla varar mjög eindregið við svona leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×