Innlent

Landsliðið komið aftur heim

MYND/Anton Brink

Flugvél með íslenska handknattleikslandsliðið lenti rétt fyrir klukkan fimm síðdegis á Reykjavíkurflugvelli þar sem tekið var á móti þeim sem þjóðhetjum.

Þaðan var för landsliðsins heitið í móttöku á Kjarvalsstöðum og svo á Skólavörðuholtið.

MYND/Arnþór

Þaðan var ekið niður Skólavörðustíg og að Arnarhóli þar sem haldin var hátíð þeim til heiðurs. Stöð 2 og Vísir sýndu beint frá atburðinum.

Í kvöld mun svo Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sæma þá fálkaorðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×