Ummæli Jakobs gera hann ekki vanhæfan og varða ekki áminningu 9. júní 2008 14:48
Ummæli Jakobs Frímanns Magnússonar, framkvæmdastjóra miðborgarmála, um Dag B. Eggertsson, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, gera hann ekki vanhæfan til þess að sinna starfi sínu hjá borginni. Ummælin varða heldur ekki áminningu eða öðrum agaviðurlögum samkvæmt reglum um réttindi og skyldur starfsmanna Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í svari Kristbjargar Stephensen borgarlögmanns við fyrirspurn minnihlutans í borgarráði. Borgarfulltrúar Vinstri - grænna, Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins leituðu álits lögmannsins eftir að Jakob Frímann hafði meðal annars látið þau orð falla í viðtölum að Dagur væri bitur læknir sem ekki gæti unað öðrum lækni að sitja í stóli borgarstjóra. Þessi orð taldi minnihlutinn sýna að Jakob Frímann gætti ekki hlutleysis sem embættismaður borgarinnar og vildu fá úr því skorið hvort hann gæti sinnt starfi sínu með eðlilegum hætti fyrir ráð og nefndir borgarinnar vegna orðanna. Jakob Frímann ekki embættismaður Borgarlögmaður kemst að því að Jakob Frímann gegni ekki stöðu embættismanns hjá borginni heldur verkefnisstjóra sem ráðinn sé tímabundið. Tjániningarfrelsi opinberra starfsmanna sé varið með stjórnarskránni og vísað er til álits umboðsmanns Alþingis vegna þess. „Þegar ummæli þess starfsmanns sem fyrirspurnin lýtur að eru virt, staða hans í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar sem og það að persóna mannsins hafði blandast inn í fjölmiðlaumræðu, sem varð í kjölfar harkalegrar pólitískrar umræðu, verður ekki talið að þau séu þess eðlis að áminningu sæti," segir borgarlögmaður. Um almennt hæfi til að sinna störfum segir borgarlögmaður að almennt hafi verið viðurkenndur sá skilningur meðal stjórnenda og annarra starfsmanna sem gegna sérstökum trúnaðarstörfum fyrir Reykjavíkurborg að í trúnaðarskyldum þeirra felist að þeir tjái sig ekki með persónulegum hætti um persónur og pólitísk deiluefni sem efst eru á baugi hverju sinni. „Umræddur starfsmaður, sem fyrirspurnin lýtur að, gegnir ekki slíkri stöðu hjá Reykjavíkurborg auk þess sem hann var nýtekinn við starfi sínu og því ekki óeðlilegt að honum væri ekki kunnugt um þessa annars viðurkenndu venju. Að lokum ber að líta til þess að persóna hans blandaðist inn í fjölmiðlaumræðu sem spannst í framhaldi af harkalegri pólitískri gagnrýni og því ekki óeðlilegt að hann svaraði spurningum sem fjölmiðlar beindu að honum þótt þau svör væru vissulega með öðrum hætti en menn eiga almennt að venjast frá starfsmönnum borgarinnar og embættismönnum sérstaklega," segir borgarlögmaður enn fremur. Álitið í heild sinni má sjá hér að neðan
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Fleiri fréttir „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Sjá meira