Erlent

Líklegt að stríðandi stjórnmálaleiðtogar í Zimbabwe fundi saman

Búist er við að stjórnmálaleiðtogar í Zimbabwe undirriti í dag samkomulag um framhald viðræðna um hvernig megi endurreisa lýðræðið í landinu þar sem efnahags- og stjórnmálalíf er nú í kalda koli. Sendimaður Sameinuðu þjóðanna í Zimbabwe segir að Mugabe forseti og Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, muni undirrita samkomulagið.

Þetta samkomulag átti upphaflega að undirrita í síðustu viku en Tsvangirai hætti við á síðustu stundu, þar sem kröfur hans hefðu ekki verið teknar til greina. Það á svo eftir að koma í ljós hvort viðræðurnar, sem nú er verið að ákveða, leiða til þolanlegrar niðurstöðu fyrir íbúa landsins.

Kröfur Tsvangirai og hans manna eru að stjórnvöld láti af ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum, að stjórnarandstæðingar verði látnir lausir úr fangelsum, að alþjóðlegt hjálparstarf í landinu hefjist á ný, að Afríkusambandið hafi fastafulltrúa í landinu og að þing verði kallað saman.

Krafa Mugabes er hinsvegar aðeins ein: að hann verði viðurkenndur sem réttkjörinn forseti.

Stjórn hans hefur tilkynnt um nýjustu aðgerðir sínar í efnahagsmálum: útgáfu á eitt hundrað milljarða peningaseðli. Seðillinn mun þó varla duga til að kaupa brauðhleif enda er verðbólga í landinu nú yfir tvö milljón prósent á ári.

Þá hefur stjórnin tilkynnt að eignarhald Vesturlandabúa á fyrirtækjum í Zimbabwe verði fært í hendur heimamanna og kaupsýslumanna frá vinveittum ríkjum, einkum asískum. Kínverjar hafa veitt Mugabe stuðning í gegnum árin.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×