Erlent

Vísindamenn hafa hugsanlega uppgötvað lyf gegn malaríu

Ástralskir vísindamenn hafa gert uppgötvun sem hugsanlega gæti dugað í baráttunni við malaríu. Þeir hafa einangrað þann hluta bakteríunnar sem kemur í veg fyrir að ónæmiskerfi líkamans losi sig sjálfkrafa við sníkilinn.

Ástralirnir telja að þetta geti orðið til þess að hægt verði að vinna bug á sjúkdómnum, sem árlega kostar milljón mannslíf, gjarnan líf ungra barna í Afríku sunnan Sahara.

Hægt er að koma í veg fyrir að maður fái malaríu og einnig er unnt að lækna hana - en til þess þarf að hafa tafarlausan aðgang að réttum lyfjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×