Erlent

Ætla 100 prósent diplómatísku leiðina

David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands.
David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands.

Bretar eru 100 prósent einbeittir á að fara diplómatísku leiðina í deilu þeirra og annarra þjóða við Írana um kjarnorkumál þeirra. Þeir vilja ekki að Ísraelsmenn ráðist á kjarnorkustöðvar Írana. Þetta sagði David Miliband utanríkisráðherra Bretlands í dag.

Íran hefur verið sakað um að auðga úran til vopnaframleiðslu en þeir hafa staðfastlega neitað því. Bandaríkjamenn hafa krafist þess að Íranar hætti strax að auðga úran en sendu þó fulltrúa sinn á fund Írana við Vesturlöndin og Sameinuðu Þjóðirnar í Genf fyrr í júlí.

Írönsk stjórnvöld sögðu nú síðast ætla að hætta samvinnu við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina (IAEA) sem hefur verið að reyna að hafa eftirlit með kjarnorkumálum Írana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×